Fotbolti.net
09.09.26 - 13:36
Kári Snorrason

Óli Skúla: Held að það hjálpi okkur mikið

Auglýsing
Ólafur Ingi Skúlason á Laugardalsvelli.

Ólafur Ingi Skúlason á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
„Það er mikil spenna hjá okkur og tilhlökkun," segir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks. Á föstudagskvöld er Kópavogsliðið að fara að mæta Lengjudeildarmeisturum Aftureldingar í bikarúrslitaleiknum á Laugardalsvelli.

Eini titill Ólafs Inga á leikmannaferlinum var bikarmeistaratitill með Fylki 2001.

„Það eru 25 ár síðan ég var 18 ára gamall og vann þennan bikar. Þá hugsaði ég að þetta væri einn af mörgum en svo líða árin, það er ekki sjálfsagt að vera í bikarúrslitum," segir Ólafur.
Tveir sem verða 100% ekki með Blikum
TENGT EFNI

Tveir sem verða 100% ekki með Blikum

Þó Afturelding hafi spilað í Lengjudeildinni í sumar spá því margir að Mosfellingar verði bikarmeistarar.

„Mjög flott lið sem hefur verið lengi saman. Rútinerað lið með mikla reynslu. Maggi hefur gert frábæra hluti með þá og þetta er hörkuandstæðingur."

Breiðablik hefur á hinn bóginn fengið mikla gagnrýni fyrir slaka spilamennsku og langt er síðan liðið fagnaði sigri.

„Við erum núna að fókusa á bikarkeppnina og það er annað mót. Þetta er úrslitaleikur og við erum með mjög reynslumikið lið, Blika innanbúðar sem hafa tekið þátt í stórum leikjum. Við erum fókuseraðir á þetta verkefni."

Ólafur Ingi stýrði Breiðabliki í Sambandsdeildinni síðasta vetur en þar voru heimaleikirnir á Laugardalsvelli.

„Ég held að það sé ákveðin rútína í því að hafa spilað leiki hérna þar sem mikið er undir. Ég held að það hjálpi okkur mikið," segir Ólafur Ingi Skúlason en viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Óli Skúla: Held að það hjálpi okkur mikið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.