Nýuppgötvuð dýrategund nefnd í höfuðið á Vozinha

Sló í gegn á HM.

Mynd: EPA

Sæsnigillinn.

Mynd: Skjáskot/Jesus Ortea

Sló í gegn á HM.

Mynd: EPA
Fertugi markvörðurinn Vozinha sló rækilega í gegn með Grænhöfðaeyjum á heimsmeistaramótinu.
Frægðarsól Vozinha reis hratt eftir 0-0 jafntefli gegn Evrópumeisturum Spánar í fyrstu umferð og fór fylgjendafjöldi hans á Instagram upp úr öllu valdi og telur nú 28,5 milljónir.

Vinsældirnar eru það miklar að nýuppgötvuð tegund af sjávarsniglum hefur verið nefnd eftir Vozinha.
Tegundin sem um ræðir fannst í Karíbahafi og er lítill rauðlitur sæsnigill, sem er um fjórir millimetrar að stærð.
Spænski rannsakandinn Jesus Ortea uppgötvaði tegundina og var nafnavalið hans leið til að þakka íbúum Grænhöfðaeyja en þar hlaut hann viðurkenningu fyrir framlag sitt til sjávarrannsókna fyrir þremur árum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ortea nefnir nýja tegund í höfuðið á fótboltamanni en árið 2019 nefndi hann nýja tegund af sæsniglum í höfuðið á Keylor Navas, fyrrum markverði Real Madrid.