Fotbolti.net
10.07.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Arftaki Dumfries kostar 30 milljónir

Arftaki Dumfries kostar 30 milljónir
Canon

Mynd: EPA

Inter er svo gott sem búið að festa kaup á nýjum vængbakverði sem á að taka við keflinu af Denzel Dumfries sem var seldur til Real Madrid fyrr í sumar.
Ivan Provedel til Inter (Staðfest)
TENGT EFNI

Ivan Provedel til Inter (Staðfest)

Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskiptin þar sem Inter greiðir um 30 milljónir evra til að kaupa Anan Khalaili úr röðum Royale Union Saint-Gilloise.

Khalaili er 21 árs Ísraeli. Hann er hægri kantmaður að upplagi og var algjör lykilmaður í liði Union SG ásamt því að vera mikilvægur hlekkur í landsliði Ísraela.

Inter borgar 25 milljónir fyrir leikmanninn og ofan á þá upphæð bætast árangurstengdar aukagreiðslur.

Þess má geta að Inter fékk aðeins 20 milljónir fyrir söluna á Dumfries vegna riftunarákvæðis.

Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á félagaskiptin.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.