Fotbolti.net
10.08.26 - 10:09
Elvar Geir Magnússon

Þrjú álfusambönd höggva í Infantino í nýrri yfirlýsingu

Salman bin Ibrahim Al Khalifa, forseti fótboltasambands Asíu, er hér við hlið Infantino.

Salman bin Ibrahim Al Khalifa, forseti fótboltasambands Asíu, er hér við hlið Infantino.

Canon

Mynd: EPA

Átökin í alþjóðlega fótboltanum halda áfram en nú hafa þrjú álfusambönd sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu. Það eru UEFA (Evrópa), Concacaf (Norður- og Mið-Ameríka) og asíska fótboltasambandið.

Forsetar og framkvæmdastjórar þessara sambanda skrifa undir yfirlýsinguna og þar er hoggið í Gianni Infantino forseta FIFA, alþjóða sambandsins, þó hann sé ekki nafngreindur.

Í yfirlýsingunni er sagt að blekkingarleikur hafi verið í gangi þegar stefnt var að því að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA. Vegið hafi verið að heiðarleika íþróttarinnar.
FIFA segir aðför gerða að Infantino
TENGT EFNI

FIFA segir aðför gerða að Infantino

„Þegar trausti er brugðist með blekkingum, og einstaklingur setur sjálfan sig ofar þeirri heild sem treysti honum fyrir völdum, þá hefur skyldu verið varpað fyrir róða. Forysta í fótbolta snýst ekki um að hafa völd heldur felur í sér þá skyldu að þjóna fótboltafjölskyldunni sem veitir umboðið," segir í yfirlýsingunni.

Heimildarmenn breska ríkisútvarpsins segja að líta beri á yfirlýsinguna sem tækifæri fyrir Infantino til að segja af sér og láta af embætti með reisn.
Victor Montagliani er forseti Concacaf.

Victor Montagliani er forseti Concacaf.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.