Fotbolti.net
09.08.26 - 16:59
Brynjar Ingi Erluson

Rashford kominn með nýtt treyjunúmer

Rashford kominn með nýtt treyjunúmer
Canon

Mynd: EPA

Marcus Rashford er mættur aftur til Manchester United og hefur fengið nýtt treyjunúmer fyrir tímabilið, kjósi hann að vera áfram hjá félaginu.
Rashford áfram hjá Man Utd?
TENGT EFNI

Rashford áfram hjá Man Utd?

Rashford sneri aftur til æfinga hjá Manchester United í morgun og ágætar líkur eru á að hann verði áfram hjá félaginu á komandi tímabili.

Hann lék með Barcelona á láni á síðustu leiktíð og varð Spánarmeistari með liðinu. Rashford stóð sig vel en Börsungar ákváðu að kaupa Anthony Gordon í stað þess að virkja kaupákvæðið í lánssamningi Englendingsins.

Félög í Sádi-Arabíu og Tyrklandi hafa sýnt Rashford mikinn áhuga. Hann hefur þó lítinn áhuga á að halda þangað á þessum tímapunkti ferilsins.

Fabrizio Romano segir Manchester United tilbúið að gefa Rashford annað tækifæri. Hann hefur þegar fengið nýtt treyjunúmer og mun klæðast treyju númer 14, eins og hann gerði hjá Barcelona.

Romano segir úthlutun númersins vera skýrt merki um að United beri enn traust til Rashford og sjái hann sem hluta af framtíðaráformum félagsins.

Rashford var áður í treyju númer tíu hjá United en Matheus Cunha hefur nú tekið við henni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.