Fotbolti.net
10.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Njósnarar Man Utd og Tottenham fóru til Belgíu

Tresoldi er undir smásjá stórliða

Tresoldi er undir smásjá stórliða

Canon

Mynd: EPA

Njósnarar á vegum Manchester United og Tottenham horfðu á Aston Villa vinna 3-2 sigur á Club Brugge í 1. umferð í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu á þriðjudag. Þetta segir blaðamaðurinn Graeme Bailey.
Útsendarar félaganna voru ekki mættir til að fylgjast með Villa heldur ítalska framherjanum Nicolo Tresoldi hjá Club Brugge.

Tresoldi er 22 ára gamall og skoraði 23 mörk fyrir Brugge á síðustu leiktíð. Hann hefur haldið uppteknum hætti og er kominn með fimm mörk í sjö leikjum á tímabilinu, þar á meðal úr vítaspyrnu gegn Villa.

Hann ólst upp á Ítalíu en flutti til Þýskalands þrettán ára gamall. Þar lék hann með yngri liðum Hannover áður en hann vann sér sæti í aðalliðinu tímabilið 2022-2023, þá 18 ára.

Brugge keypti hann fyrir síðustu leiktíð og frammistaðan þar hefur vakið mikla athygli. Nú er ljóst að bæði Man Utd og Tottenham hafa augastað á honum.

Félögin horfa eflaust til næsta sumars en haldi Tresoldi áfram á sömu braut gæti hann skipt um félag strax í janúar.

Tresoldi er með bæði ítalskt og þýskt vegabréf og hefur leikið með yngri landsliðum Þýskalands. Julian Nagelsmann íhugaði að velja hann í HM-hópinn í sumar en ákvað að taka aðra leikmenn fram yfir hann og sagði að hans tími myndi koma.

Þjóðverjar gætu þó misst af framherjanum. Nú er talið líklegt að Roberto Mancini, nýr landsliðsþjálfari Ítalíu, kalli hann inn fyrir Þjóðadeildina og að Tresoldi þiggi boðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.