10.09.26 - 12:30
Elvar Geir Magnússon
Fabregas: Sögulegur dagur fyrir félagið

Cesc Fabregas, stjóri Como.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Cesc Fabregas, stjóri Como.

Mynd: EPA
Cesc Fabregas, stjóri ítalska liðsins Como, segir að leikurinn gegn RB Leipzig í kvöld sé sögulegur en leikmenn verði þó að nálgast hann eins og hvern annan leik.
Það er stór stund á Stadio Giuseppe Sinigaglia þegar Como leikur í fyrsta sinn í stærstu fótboltakeppni Evrópu. Uppgangur Como undanfarin ár hefur vakið gríðarlega athygli.

TENGT EFNI
Stjórnarmenn gefa eftir sætin sín á sögulegum leik
„Þetta er mikilvægur leikur fyrir okkur, fyrir okkar sögu og alla í Como. Á sama tíma mætum við toppliði og þurfum að eiga góðan leik, Leipzig er virkilega vel skipulagt lið," segir Fabregas.
„Undirbúningurinn hefur verið hefðbundinn. Ef ég myndi breyta til væri það skilaboð um að þetta sé allt öðruvísi leikur en við erum vanir að spila."
„Við leikgreinum alla andstæðinga eins vel og við getum en við þurfum að spila fullkominn leik til að fá þrjú stig í Meistaradeildinni. Leipzig er með frábærlega mannað lið, með öfluga kantmenn og sterka miðverði. En ég hef fulla trú á mínu liði."