10.09.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jón Vignir tæpur fyrir stærsta leik tímabilsins

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Vignir Pétursson, leikmaður Aftureldingar, er tæpur vegna meiðsla fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Breiðabliki. Selfyssingurinn glímir við ökklameiðsli sem hann varð fyrr í sumar.
Miðjumaðurinn ræddi við Fótbolta.net og var hóflega bjartsýnn á að geta tekið þátt í leiknum á morgun.

TENGT EFNI
Einn mesti markaskorari Aftureldingar verður ekki með
„Staðan á mér er nokkuð svipuð og hún er búin að vera undanfarnar vikur. Ökklinn er aðeins búinn að vera stríða mér, talsverðar bólgur og verkir en finnst þetta allt vera að mjakast í rétta átt," segir Jón Vignir.
„Varðandi möguleikann á að spila á morgun þá verður það bara að koma í ljós, ég hef spilað lítið upp á síðkastið og æft lítið sömuleiðis en er þó að nálgast það að geta spilað mínútur eins og mér líður með síðustu daga."
„Ég tók fyrri hálfleikinn á móti Njarðvík um síðustu helgi og þá var verið að prófa stöðuna á ökklanum. Það er gott að geta fengið mínútur og fundið tilfinninguna í þessu. Að sjálfsögðu hafa það verið vonbrigði að missa af síðustu leikjum og mögulega leiknum á morgun en það kemur í ljós. Maður vill taka þátt í svona leikjum, en svona er þetta. Ég mun verða til taks og styðja strákana að fullu og hlakka til að sjá þá takast á við verkefnið á morgun," segir Jón Vignir.
Hann meiddist mjög illa á síðasta tímabili og var frá langt fram á veturinn. Hann samdi við Aftureldingu fyrir tímabilið og kom sér af stað. Hann hefur spilað í þrettán deildarleikjum og þremur bikarleikjum í sumar og var að finna sig vel í liðinu. Ökklameiðslin sem hann glímir við í dag tengjast meiðslum síðasta árs.
„Þau hafa áhrif, ökklinn er enn að ná sér eftir það. Það kom eitthvað fyrir ökklann í júlí og ég er enn að vinna mig úr því," segir Jón Vignir.
Bikarúrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvelli annað kvöld og hefst klukkan 19:00