10.09.26 - 08:42
Elvar Geir Magnússon
Pochettino: Tottenham ætti að fá titilinn 2017 af Chelsea

Pochettino stýrði Tottenham 2014 til 2019,

Mynd: EPA

Mauricio Pocchettino segir að taka ætti Englandsmeistaratitil Chelsea frá 2016-17 tímabilinu af félaginu. Tottenham, sem endaði í öðru sæti sjö stigum frá toppnum undir hans stjórn, ætti að fá titilinn.
Chelsea var sektað um 10,75 milljónir punda í mars fyrir að brjóta reglur ensku úrvalsdeildarinnar.

TENGT EFNI
Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær sekt
Eigendurnir Todd Boehly og Clearlake Capital tilkynntu sjálfir um 74 brot á reglum enska fótboltasambandsins (FA) þegar þeir keyptu félagið árið 2022. Brotin áttu sér stað í eigendatíð Roman Abramobvich.
Chelsea braut reglur varðandi greiðslur til umboðsmanna og þriðja aðila á tímabilinu 2011 til 2019.
„Við ættum að hafa unnið einn Englandsmeistaratitil. Við ættum að fá hann. Chelsea braut reglur og viðurkenndi það, hvað er þá málið? Titillinn á að fara til liðsins sem varð í öðru sæti," segir Pochettino.
„Það er satt að þeir kepptu ekki undir sömu reglum. Það er algjörlega sanngjarnt að segja að við höfum ekki fengið að spila með sömu spil frá upphafi tímabilsins."
Pochettino er núverandi landsliðsþjálfari Bandaríkjanna en hann stýrði Tottenham í fimm ár. Liðið komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2019 undir hans stjórn en vann engan titil.
„Ef við hefðum gert það sama þá hefðum við kannski getað keypt leikmenn sem hefðu bætt liðið eða skorað fleiri mörk. Þetta er ekki ég að kvarta, þetta er sannleikurinn. Ef þeir viðurkenna að hafa brotið reglur þá á Englandsmeistaratitillinn að fara til liðsins í öðru sæti."