10.10.26 - 09:25
Brynjar Ingi Erluson
Englandsmeistararnir leggja fram tilboð í mexíkóskt undrabarn - Endrick til Milan?

Gilberto Mora til Arsenal?

Mynd: EPA

Fer Endrick til Milan?

Mynd: EPA

Carrick gæti þurft að skoða leikmannamarkaðinn í janúar

Mynd: EPA

Gilberto Mora til Arsenal?

Mynd: EPA

Stórliðin eltast við mexíkóskt undrabarn, Milan vill fá Endrick og ensku risarnir hafa augastað á varnarmanni Nottingham Forest. Þetta og fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Arsenal hefur lagt fram tilboð í mexíkóska undrabarnið Gilberto Mora (17) hjá Club Tijuana. Riftunarákvæði í samningi hans hljóðar upp á 21,2 milljónir punda en Barcelona, Borussia Dortmund, Benfica, Liverpool og Real Madrid hafa einnig áhuga. (El Porvenir)
AC Milan telur sig standa vel að vígi í baráttunni um að fá brasilíska framherjann Endrick (20) á láni frá Real Madrid í janúar, haldi hann áfram að fá fá tækifæri á Spáni. (Gazzetta dello Sport)
Nottingham Forest býst við fyrirspurnum um brasilíska varnarmanninn Murillo (24) í janúar. Chelsea, Liverpool og Manchester United hafa öll mikinn áhuga á honum. (Teamtalk)
Christoph Freund, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern München, segir samningaviðræður við enska framherjann Harry Kane ganga vel. Félagið sé staðráðið í að ná samkomulagi á næstunni. (ESPN)
Paris Saint-Germain vill fá Pablo Barrios (23), leikmann Atlético Madríd og spænska landsliðsins, í janúar og er kaupverðið talið geta numið um 70 milljónum evra. (Fichajes)
Tottenham fylgist náið með Vangelis Pavlidis (27), framherja Benfica og gríska landsliðsins. Að fá sóknarmann er efst á forgangslista félagsins. (CaughtOffside)
Bayern München hefur mikinn áhuga á Luka Vuskovic (19), varnarmanni Brighton, og er hann ofarlega á óskalista félagsins fyrir næsta sumar. Chelsea og Barcelona fylgjast einnig með honum. (Teamtalk)
Dani Olmo (28), leikmaður Barcelona og spænska landsliðsins, er einnig á óskalista Bayern. (beIN Sports)
Manchester United gæti þurft að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum í janúar en félagið vantar vinstri bakvörð og sóknarmann. (Sun)