Fotbolti.net
10.10.26 - 09:41
Brynjar Ingi Erluson

Fær ekki samning hjá Celtic

Fær ekki samning hjá Celtic
Canon

Mynd: Chelsea FC

Franski miðjumaðurinn Tiemoue Bakayoko fær ekki samning hjá skoska stórliðinu Celtic en þetta herma heimildir Sky Sports.
Bakayoko er 32 ára og hefur verið án félags síðan hann fór frá PAOK í Grikklandi í fyrra.

Hann var talinn einn efnilegasti miðjumaður heims þegar Chelsea keypti hann frá Mónakó árið 2017 en síðan hefur leiðin legið niður á við. Hann fór á láni til AC Milan, Napoli og Mónakó áður en hann gekk til liðs við Lorient árið 2023.

Hann spilaði eitt tímabil með Lorient og fór síðan til PAOK, þar sem hann náði aðeins níu leikjum áður en hann fór.

Lítið hefur spurst til Frakkans síðan en á dögunum æfði hann með Celtic og nýtti aðstöðu félagsins til að halda sér í formi. Skoska félagið ætlar þó ekki að bjóða honum samning og heldur leitin að nýju liði því áfram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.