Fotbolti.net
10.10.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tómas orðaður við Víking og ÍA - „Ekkert mikið að pæla í þessu"

Tómas orðaður við Víking og ÍA - „Ekkert mikið að pæla í þessu"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tómas Orri Róbertsson, miðjumaður FH, er eftirsóttur en hann hefur verið orðaður við Víking og ÍA undanfarið.

Fótbolti.net ræddi við Tómas Orra og hann var spurður að því hvernig það væri að lesa um áhuga á sér.
„Það er alltaf smá viðurkenning að maður sé að gera ágæta hluti. En svo er ég bara að fókusa FH og mér líður vel í Kaplakrika. Ég er leikmaður FH í dag og líður vel þar og það er í rauninni ekki hægt að segja neitt meira eins og staðan er í dag," sagði Tómas.

Hann var spurður að því hvort hann væri meðvitaður um áhugann.

„Nei, maður kemur sjálfur stundum af fjöllum. Maður les þetta stundum í miðlum eða fær eitthvað sent, maður er ekkert mikið að pæla í þessu. Maður er bara að hugsa um næsta leik og þetta tímabil og klára það vel. Það er náttúrulega bara fyrsta markmið," sagði Tómas.

Þá var Tómas Orri spurður út í ákvörðunina að fara í FH en hann skipti frá Breiðabliki fyrir einu og hálfu ári síðan og er kominn í lykilhlutverk í Kaplakrika.

„Ég tel hana bara vera býsna góða eins og staðan er í dag. Ég fékk mikið traust frá Heimi á fyrsta tímabili og gekk vel og núna frá Jóa. Mér finnst ég bara búinn að vera nánast að taka sénsinn minn og byggja ofan á minn leik með hverjum deginum. Það er það sem maður reynir að gera og vill ná eins langt og maður getur sko."

Ertu með einhver stór markmið, atvinnumennska?

„Já, það er alltaf síðan maður var lítill krakki að vilja fara í atvinnumennsku. En fyrst og fremst að klára þetta vel með FH, sjá svo til og vonandi einhvern tímann í framtíðinni þá opnast möguleikar á atvinnumennsku."

Strákarnir á leið í umspilið - „Geggjað að sjá hvað það var góð og sterk liðsheild"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.