10.11.14 - 23:59
Grímur Már Þórólfsson
Moyes ráðinn þjálfari Real Sociedad (Staðfest)

Moyes er kominn með nýja vinnu

Mynd: Getty Images

Moyes er kominn með nýja vinnu

Mynd: Getty Images
Real Sociedad hafa ráðið David Moyes sem þjálfara liðsins en ákvörðunin var tilkynnt á heimasíðu félagsins seint í kvöld.
Moyes tekur við af Jagoba Arrasate sem var rekinn í síðustu viku en liðið vann spánarmeistarana í Atletico Madrid um helgina. Var það einungis annar sigur liðsins á tímabilinu en hinn kom gegn Real Madrid í upphafi tímabilsins.
Sociedad gerði samning við Moyes til 2016 en Moyes hefur áður þjálfað Preston, Everton og Manchester United á ferlinum.

Alfreð Finnboga landsliðsmaður Íslands er eins og kunnugt er á mála hjá Real Sociedad en hann hefur lítið fengið að spila fyrir liðið enn sem komið er. Hann meiddist í upphafi tímabils og hefur átt erfitt með að koma sér inn í liðið síðan.