10.11.14 - 21:48
Magnús Már Einarsson
Ósvald Jarl í Breiðablik (Staðfest)

Jafnaldrarnir Oliver Sigurjónsson, Davíð Kristján Ólafsson, Gunnlaugur Hlynur Birgisson og Ósvald Jarl eru allir á mála hjá Blikum í dag. Adam Örn Arnarson (lengst til hægri) leikur með FC Nordsjælland.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vinstri bakvörðurinn Ósvald Jarl Traustason hefur gengið til liðs við Breiðablik á nýjan leik en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.
Ósvald er uppalinn hjá Blikum en hann fór í Fram fyrir ári síðan.
<i>,,Það er fínt að vera kominn heim. Ég þekki alla strákana og þekki félagið vel,\"</I> sagði Ósvald við Fótbolta.net um helgina.
Eftir fall Fram úr Pepsi-deildinni ákvað Ósvald að nýta sér klásúlu til að rifta samningi sínum við félagið. Fylkir vildi einnig fá Ósvald í sínar raðir en hann ákvað að semja við uppeldisfélagið.
<i>,,Það var allt mjög spennandi sem Blikarnir höfðu að segja. Þó að það séu líka spennandi hlutir sem Fylkir eru að gera þá leyfði ég hjartanu að ráða,\"</I> sagði Ósvald.
Ósvald á að baki leiki með U17 og U19 ára landsliði Íslands en hann skoraði eitt mark í fimmtán leikjum í Pepsi-deildinni í sumar

,,Breiðablik fagnar því að hafa endurheimt Ósvald aftur til Breiðabliks og býður hann hjartanlega velkominn,\" segir á Blikar.is.