Fotbolti.net
10.12.19 - 15:15
Elvar Geir Magnússon

Paulo Sousa á blaði hjá Arsenal

 Paulo Sousa er óvænt orðaður við Arsenal.

Paulo Sousa er óvænt orðaður við Arsenal.

Canon

Mynd: Getty Images

Franska blaðið L'Equipe segist hafa fengið staðfestingu á því að Paulo Sousa, fyrrum stjóri Swansea og Leicester, sé á blaði hjá Arsenal sem leitar að nýjum stjóra.

Sousa er sem stendur með Bordeaux í fimmta sæti frönsku deildarinnar.
Þrátt fyrir að hafa átt misjöfnu gengi að fagna á stjórastólanum er Portúgalinn nýjasta nafnið sem er orðað við Arsenal.

Brendan Rodgers var efstur á óskalistanum hjá Arsenal en hefur gert nýjan samning við Leicester.

Franskir fjölmiðlar segja að hinn 49 ára Sousa sé með riftunarákvæði í samningi sínum fyrir minna en 3 milljónir evra.

Heimildarmaður sem sagður er vera nátengdur Sousa sagði við L'Equipe að Arsenal teldi að karakterinn gæti hentað félaginu.

„Arsenal er í viðræðum við ýmsa aðila en Paulo er á listanum hjá þeim. Hann er ekki alveg sáttur hjá Bordeuax og ekki hefur verið staðið við það sem honum var lofað. Hann elskar stuðningsmennina en þarf að fá meiri stuðning stjórnarinnar, liðið er ekki nægilega sterkt til að enda í topp sex," segir heimildarmaðurinn.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.