10.12.20 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bjarni um ummæli Mikaels: Maður er orðinn öllu vanur

Bjarni mun þjálfa Njarðvík ásamt Hólmari Erni Rúnarssyni.

Mynd: VF-myndir: Pket

Bjarni Jóhannsson var nýverið ráðinn þjálfari Njarðvíkur ásamt Hólmari Erni Rúnarsyni. Þeir munu stýra liðinu í 2. deild karla næsta sumar og er Bjarni spenntur fyrir verkefninu.
„Mér líst vel á þetta. Hér er fín aðstaða sem við fáum reyndar ekki að nota núna. Miðað við að þetta sé 2. deildarfélag þá er góð umgjörð og góður andi í kringum þetta," segir Bjarni í samtali við Fótbolta.net.

„Mér líst ágætlega á þetta. Ég er búsettur í Njarðvík þannig að þetta verður öðruvísi fyrir mig; ég hef verið á landshornarflakki síðustu átta árin. Vonandi öðlast ég ró og frið hérna, og get hjálpað þeim við að komast aðeins ofar."
Mikael Nikulásson var látinn fara frá Njarðvík, en hann vandaði Bjarna ekki kveðjurnar í hlaðvarpsþættinum Dr Football eftir brottreksturinn.
„Menn þurfa að sýna smá heiðarleika. Það er alveg klárt mál að Bjarni Jó sé ekki að gera þetta í fyrsta skiptið, hann hugsar bara um rassgatið á sjálfum sér og það er mín skoðun. Ég kann ágætlega við Bjarna en ég persónulega myndi aldrei taka svona að mér þar sem annar þjálfari er með starfið," sagði Mikael.
Fréttamaður Fótbolta.net spurði Bjarna hvort hann vildi svara þessum ummælum.
„Nei, ég er ekkert í þeim bardaga. Maður er orðinn öllu vanur eftir 30 og eitthvað ár. Það munar ekkert um þetta."

Mikael Nikulásson.

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét