Fotbolti.net
10.12.20 - 20:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sjáðu hræðilegt klúður Alberts gegn Rijeka

Sjáðu hræðilegt klúður Alberts gegn Rijeka
Canon

Mynd: Getty Images

Albert Guðmundsson sefur eflaust ekki vel eftir leik AZ Alkmaar og RIjeka í Evrópudeildinni í kvöld. AZ hefði þurft á sigri að halda en fram undir lok leiks virtist jafntefli ætla að duga hollenska liðinu til að komast áfram í útsláttarkeppnina.

Undir lok leiks skoraði RIjeka og á svipuðum tíma jafnaði Real Sociedad gegn Napoli í hinum leik riðilsins. Alkmaar endar því stigi á eftir Sociedad.

Rijeka komst yfir á 52. mínútu en þremur mínútum síðar fékk Albert Guðmundsson algjört dauðafæri til að jafna leikinn.
Boltinn barst inn á Albert sem hitti ekki markrammann af stuttu færi. Skömmu síðar jafnaði AZ en eins og fyrr segir vann Rijeka leikinn á endanum.

Færið sem Albert fékk má sjá hér.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.