Fotbolti.net
10.12.20 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Svanhildur Ylfa semur við Víking (Staðfest)

Svanhildur Ylfa í leik með HK/Víkingi í Pepsi Max-deild kvenna.

Svanhildur Ylfa í leik með HK/Víkingi í Pepsi Max-deild kvenna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Knattspyrnudeild Víkings hefur samið við hina efnilegu Svanhildi Ylfu Dagbjartsdóttur um að spila með liðinu næstu tvö árin.
Svanhildur Ylfa, sem fædd er 2003, spilaði tíu leiki með liði HK/Víkings í Pepsi Max-deild kvenna árið 2019 og skoraði þar eitt mark, þá aðeins 16 ára gömul.

Svanhildur Ylfa hefur nokkrum sinnum verið valin í úrtakshóp yngri landsliða og á tvo leiki að baki með U-17 ára liði Íslands úr undankeppninni 2019.

Síðastliðið sumar kom Svanhildur til Víkings á láni frá FH. Hún spilaði 16 leiki af 17 í Lengjudeildinni með Víking og tók þátt þar þátt í gríðarlega mikilvægum skrefum félagsins til framtíðar.

„Svanhildur Ylfa er sannur íþróttamaður sem leggur sig fram um að ná árangri í hverju því verkefni sem hún tekur sér fyrir hendur og bindur félagið miklar vonir við þennan efnilega og metnaðarfulla leikmann. Það er með mikilli ánægju sem hún er kynnt sem samningsbundinn leikmaður knattspyrnudeildar Víkings," segir í tilkynningu frá Víkingum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.