Fotbolti.net
11.02.15 - 15:49
Magnús Már Einarsson

Andri Fannar í Hauka (Staðfest)

Andri fagnar marki með Njarðvík.

Andri fagnar marki með Njarðvík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Haukar hafa fengið Andra Fannar Freysson til liðs við sig en þetta staðfesti Luka Kostic þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net í dag. Andri Fannar kemur til Hauka frá uppeldisfélagi sínu Njarðvík.

Hann hefur leikið með Haukum í Fótbolta.net mótinu en fyrr í vetur æfði Andri og spilaði æfingaleiki með KR.
Andri er 22 ára gamall miðju og kantmaður en hann var valinn efnilegasti leikmaðurinn í 2. deild árið 2011.

Árið 2013 fór Andri í Keflavík en hann skipti að nýju í Njarðvík um mitt síðasta sumar.

Haukar eru einnig í viðræðum við bandaríska markvörðinn William Dieterich.

Will spilaði með Tindastóli í 1. deildinni síðari hluta síðasta sumars en hann var á reynslu hjá Haukum á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.