11.02.15 - 20:07
Ívan Guðjón Baldursson
Aston Villa búið að reka Paul Lambert (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Aston Villa er búið að reka Paul Lambert eftir tvö og hálft ár við stjórnvölinn.
Aston Villa er í fallbaráttu ensku deildarinnar og er aðeins búið að skora 12 mörk í 25 leikjum sem er sögulega léleg markaskorun.
Aston Villa er í fallbaráttu ensku deildarinnar og er aðeins búið að skora 12 mörk í 25 leikjum sem er sögulega léleg markaskorun.
Talið er að Tim Sherwood sé líklegastur til að taka við en Aston Villa er án aðstoðarknattspyrnustjóra eftir að Roy Keane hætti störfum undir lok nóvember.
Lambert hafði stýrt Norwich City við góðan orðstír áður en hann tók við Villa en náði aldrei að koma liðinu upp úr miðjumoði í deildinni.
Lambert hafði stýrt Norwich City við góðan orðstír áður en hann tók við Villa en náði aldrei að koma liðinu upp úr miðjumoði í deildinni.
