Fotbolti.net
11.02.15 - 11:30
Magnús Már Einarsson

Hector Pena Bustamante í Fjarðabyggð (Staðfest)

Hector í leik með ÍA.

Hector í leik með ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Fjarðabyggð hefur fengið spænska varnarmanninn Hector Pena Bustamante í sínar raðir.

Hector hjálpaði Leikni Fáskrúðsfirði að komast upp úr 3. deildinni síðastliðið sumar en hann var mjög öflugur í vörn liðsins.
Hector kom fyrst til Íslands um mitt sumar árið 2013 þegar hann gekk í raðir ÍA.

Þá spilaði þessi þrítugi leikmaður níu leiki í Pepsi-deildinni með skagamönnum.

Síðastliðið sumar spilaði Hector síðan alla leiki Leiknis í 3. deildinni og skoraði þrjú mörk.

Fjarðabyggð sigraði 2. deildina á síðasta tímabili en fyrr í vetur fékk liðið Alexander Aron Davorsson og Elvar Inga Vignisson í sínar raðir frá Aftureldingu.

Fjarðabyggð hefur leik í Lengjubikarnum á sunnudaginn þegar liðið fær Þór í heimsókn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.