Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 11. febrúar 2020 21:00
Aksentije Milisic
Bologna setur háan verðmiða á Orsolini
Mynd: Getty Images
Walter Sabatini, yfirmaður íþróttamála hjá Bologna, hefur sagt að leikmaður liðsins, Riccardo Orsolini, sé 70 milljónir evra virði. Juventus er talið hafa mikinn áhuga á að fá leikmanninn aftur.

Þessi 23 ára gamli ítalski kantmaður gekk til liðs við Bologna árið 2018 á láni áður en að liðið keypti leikmanninn fyrir þetta tímabil frá Juventus.

Orsolini hefur verið öflugur fyrir Bologna það sem af er vetri en hann hefur skorað 7 mörk og lagt upp fjögur í 23 deildarleikjum. Juventus hefur fylgst vel með leikmanninum.

„Hann er ekki til sölu. En ef hann vill fara, þá sleppum við honum ekki ódýrt. Við ræddum við Juventus um forkaupsréttindi en það var aldrei skrifað niður á samninginn. Núna er hann 70 milljónir evra virði," sagði Sabatini.
Athugasemdir
banner
banner