11.02.26 - 19:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Evrópubikarinn: Blikar fengu stóran skell í Svíþjóð

Blikar töpuðu stórt gegn Häcken.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Thelma Karen skoraði sitt fyrsta mark fyrir Häcken.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rebekka Sif hér í leik með Gróttu.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Blikar töpuðu stórt gegn Häcken.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Häcken 7 - 0 Breiðablik
1-0 Helena Sampaio ('25 )
2-0 Felicia Schröder ('30 )
3-0 Monica Jusu Bah ('33 )
4-0 Felicia Schröder ('35 )
5-0 Thelma Karen Pálmadóttir ('40 )
6-0 Paulina Nyström ('68 )
7-0 Helena Sampaio ('78 )
7-0 Felicia Schröder ('82 , misnotað víti)
Lestu um leikinn

TENGT EFNI
Sautján ára Thelma Karen með sitt fyrsta mark - Blikar í veseni
Það er óhætt að segja að einvígi Häcken og Breiðabliks í átta-liða úrslitum Evrópubikarsins sé lokið eftir fyrri leik liðanna í Svíþjóð í kvöld. Häcken var alltof stór biti fyrir Blika sem mættu í leikinn með mikið breytt lið og nýtt þjálfarateymi.
Blikar lögðu dönsku meistarana í Fortuna Hjörring í síðustu umferð en síðan þá hafa margir leikmenn yfirgefið Kópavogsfélagið og þá er nýtt þjálfarateymi komið inn. Ian Jeffs stýrði Blikum í fyrsta sinn í keppnisleik í kvöld.
Blikar náðu að halda aftur að Häcken í 25 mínútur en þá opnaðist allt. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 5-0 en Thelma Karen Pálmadóttir, sem var fengin til Häcken frá FH eftir síðasta tímabil, skoraði fimmta markið sem var hennar fyrsta mark fyrir sænska félagið. Fanney Inga Birkisdóttir var þá í marki Häcken í leiknum.
Í seinni hálfleik bætti Häcken við tveimur mörkum og þær fengu dauðafæri til að skora áttunda markið á 82. mínútu en Herdís Halla Guðbjartsdóttir, sem var í marki Blika í kvöld, varði þá vítaspyrnu.
Seinni leikurinn fer fram á Kópavogsvelli eftir viku, en það er vonandi að Blikar geti gefið meiri mótspyrnu þar.
Rebekka Sif kom inn á
Leikur Nordsjælland og Frankfurt í sömu keppni var einnig að klárast á sama tíma. Þar vann Frankfurt stórsigur, 4-0. Þegar um stundarfjórðungur var eftir af leiknum kom Rebekka Sif Brynjarsdóttir, sem uppalin er í Gróttu, inn á fyrir Nordsjælland. Hún er aðeins 16 ára og er afskaplega efnilegur leikmaður.

Byrjunarlið Häcken
- 1. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
- 3. Aivi Luik
- 4. Emma Östlund
- 7. Pernille Sanvig
- 9. Felicia Schröder
- 11. Monica Jusu Bah
- 15. Alva Selerud
- 22. Paulina Nyström
- 24. Tabitha Tindell
- 27. Thelma Karen Pálmadóttir
- 30. Helena Sampaio
Byrjunarlið Breiðablik
- 1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
- 3. Elísa Viðarsdóttir
- 4. Elín Helena Karlsdóttir
- 7. Agla María Albertsdóttir (f)
- 9. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
- 14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
- 15. Edith Kristín Kristjánsdóttir
- 17. Karitas Tómasdóttir
- 18. Kristín Dís Árnadóttir
- 27. Barbára Sól Gísladóttir
- 29. Sunna Rún Sigurðardóttir

Thelma Karen skoraði sitt fyrsta mark fyrir Häcken.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rebekka Sif hér í leik með Gróttu.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson