Fotbolti.net
11.03.15 - 09:47
Hafliði Breiðfjörð

Amath André Diedhiou til FH (Staðfest)

Amath André Diedhiou er genginn til liðs við FH.

Amath André Diedhiou er genginn til liðs við FH.

Canon

Mynd: FH

FH hefur gert tveggja ára samning við kantmanninn Amath André Diedhiou sem lék tvo leiki með FH í Fótbolta.net mótinu í janúar.
Diedhou kemur frá Senegal, en hefur leikið með liðum meðal annars í Moldavíu.

FH er í æfingaferð á Spáni og mun Diedhou leika með liðinu á æfingamóti núna næstu daga.

„Við erum mjög ánægðir með að fá Diedhou til okkar. Hann lék vel í tveim leikjum gegn Þrótti og Breiðablik í janúar. Hann mun styrkja FH-liðið og við væntum mikils af honum,\" sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH í tilkynningu sem félagið sendi frá sér rétt í þessu.

FH-ingar hafa styrkt lið sitt vel í vetur og fengið til liðs við sig fimm nýja leikmenn með komu Diedhou. Þetta eru þeir Bjarni Þór Viðarsson sem kom frá Silkeborg í Danmörku, Guðmann Þórisson frá Mjallby í Svíþjóð, Belginn Jeremy Serwy sem spilaði í Ungverjalandi á síðasta tímabili og Þórarinn Ingi Valdimarsson frá ÍBV. Þá snýr Sam Tillen aftur eftir að hafa misst af allri síðustu leiktíð vegna meiðsla.

FH hefur misst Guðjón Árna Antoníusson og Hólmar Örn Rúnarsson í Keflavík, Ingimund Níels Óskarsson í Fylki, Ólaf Pál Snorrason í Fjölni auk þess sem Bandaríkjamaðurinn Sean Reynolds er farinn til síns heima.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.