11.03.15 - 22:00
Magnús Már Einarsson
Denis Cardaklija í Víking R. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Víkingur R. hefur fengið markvörðinn Denis Cardaklija í sínar raðir.
Denis hefur skrifað undir tveggja ára samning við Víking en hann hefur undanfarin ár verið á mála hjá Fram.

Denis lék 8 leiki með Fram í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.
Hann átti áður rúmlega 60 leiki fyrir uppeldisfélagið Sindra á Höfn í Hornafirði.
Hajrudin Cardaklija, faðir Denis, var í vetur ráðinn markmannsþjálfari hjá Víkingi en hann varði meðal annars mark Breiðabliks, Leifturs og Sindra á árum áður.
Víkingur fékk fyrr í vetur danska markvörðinn Thomas Nielsen í sínar raðir.
Ingvar Þór Kale var í marki Víkings í fyrra en hann gekk í raðir Vals í vetur eftir að hafa ekki náð samningum við Fossvogsliðið.