Mikel Arteta svaraði spurningum eftir að Arsenal rétt náði jafntefli á útivelli gegn Bayer Leverkusen í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fyrr í kvöld.
Leverkusen náði forystunni í upphafi síðari hálfleiks með skallamarki eftir hornspyrnu en leikurinn var afar jafn og tíðindalítill. Noni Madueke kom inn af bekknum og breytti gangi mála.
„Hann var frábær, hann breytti hraða leiksins. Hann er svo beinskeyttur og skapaði mikla hættu. Hann hafði að lokum mikil áhrif á úrslit leiksins," sagði Arteta, en Madueke lék á tvo leikmenn Leverkusen áður en hann fiskaði vítaspyrnu sem Kai Havertz skoraði úr á 89. mínútu.
„Þetta var mjög erfiður leikur. Við byrjuðum frekar vel og áttum skot í slá en svo lentum við í vandræðum því við vorum ekki að klára sóknirnar okkar. Við töpuðum boltanum á slæmum tímum og þeir komust í skyndisóknir sem þeir eru mjög hættulegir í.
„Við vildum byrja seinni hálfleikinn af krafti en það var akkúrat öfugt. Við vorum ekki búnir að kveikja á okkur þegar þeir byrjuðu leikinn aftur og við gáfum þeim frían skalla í hornspyrnunni sem fylgdi.
„Við vorum búnir að ræða þetta fyrir leikinn að vera tilbúnir frá fyrstu sekúndu og við vorum líka búnir að fara yfir leikkerfin í hornspyrnunum þeirra. Þrátt fyrir það klikkaði dekkningin í markinu og við fengum að gjalda fyrir það."
Arteta er ánægður með hvernig sínir menn brugðust við af aga og yfirvegun.
„Strákarnir gerðu vel að leyfa tilfinningunum ekki að taka yfir. Við tókum aftur stjórn á leiknum og fundum leið aftur til baka."
Havertz kom inn af bekknum og steig á vítapunktinn til að skora jöfnunarmarkið gegn uppeldisfélaginu sínu.
„Fótboltinn gefur oft skemmtilegar sögur og þetta er ein slík. Það er magnað hvernig hann tók vítið, þetta er mjög mikilvægt mark fyrir okkur. Núna er einvígið 50/50, við verðum að nýta heimavöllinn okkar og stuðninginn þar. Það er ennþá mikið eftir af þessu einvígi."
11.03.2026 19:44
Meistaradeildin: Havertz bjargaði jafntefli gegn uppeldisfélaginu
Athugasemdir


