Ruben Amorim segist ekki hafa fundað með Liverpool um að taka við af Jurgen Klopp.
Í gær fóru af stað sögur um að Amorim væri með munnlegt samkomulag við Liverpool en hann segir það ekki rétt.
Í gær fóru af stað sögur um að Amorim væri með munnlegt samkomulag við Liverpool en hann segir það ekki rétt.
„Ég er ekki búinn að hitta Liverpool og funda með þeim. Það er ekki satt," sagði Amorim í dag.
„Ég er stjóri Sporting, ég vil vinna hérna og ég er ekki búinn að hitta neitt annað félag. Það er ekki neitt samkomulag í höfn."
„Hættiði að spyrja mig um þessar fréttir. Þetta er í síðasta sinn sem ég tjái mig um framtíð mína."
Athugasemdir