Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 11. maí 2021 22:08
Ívan Guðjón Baldursson
Vignir Snær í Þór (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Þór
Þór er búið að tryggja sér Vigni Snæ Stefánsson á samningi sem gildir út keppnisárið.

Vignir Snær er fæddur 1996 og hefur alla tíð leikið fyrir Víking Ólafsvík. Hann á 69 leiki að baki fyrir Víking og býr því yfir mikilli reynslu úr þessari deild.

Vignir er afar fjölhæfur leikmaður sem getur leyst ýmsar stöður í vörn og á miðju.

„Bjóðum Vigni Snæ velkominn til Þórs og vonum að hér eigi honum eftir að líða vel," segir á vefsíðu Þórs.
Athugasemdir