Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
banner
   mán 11. maí 2026 21:41
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deild kvenna: Dýrmætir sigrar á útivelli
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Víkingur
Tveimur síðustu leikjum kvöldsins er lokið í Bestu deild kvenna þar sem nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur unnu flottan sigur á erfiðum útivelli Þróttar R. í Laugardalnum.

Fyrri hálfleikurinn bauð upp á mikla skemmtun þar sem bæði lið komust í frábærar stöður og fengu góð færi til að skora. Heimakonur byrjuðu mun betur en gestirnir tóku stjórn á leiknum þegar tók að líða á fyrri hálfleikinn og náði Sophia Romine að skora eftir fyrirgjöf frá Rakeli Sigurðardóttur á 36. mínútu.

Þremur mínútum síðar tvöfaldaði Rakel forystuna sjálf með laglegu skoti sem fór yfir Mollee Swift á milli stanga heimakvenna.

Grindavík/Njarðvík komst nálægt því að setja þriðja markið en tókst ekki svo staðan var 0-2 í leikhlé. Heimakonur minnkuðu muninn snemma í síðari hálfleik þegar Alexia Czerwien skoraði eftir undirbúning frá Þórdísi Elvu Ágústsdóttur og var áfram mikið líf í leiknum.

Bæði lið fengu tækifæri til að bæta mörkum við leikinn en tókst ekki. Þróttarar sóttu stíft á lokamínútunum en lokatölur urðu 1-2.

Þetta er dýrmætur sigur yfir nýliðana sem eru með 6 stig eftir 4 umferðir, alveg eins og Þróttur.

Þróttur R. 1 - 2 Grindavík/Njarðvík
0-1 Sophia Faith Romine ('36)
0-2 Rakel Sigurðardóttir ('39)
1-2 Alexia Marin Czerwien ('53)

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 2 Grindavík/Njarðvík



Á sama tíma tók Fram á móti Víkingi R. í Úlfarsárdal og voru gestirnir sterkari aðilinn í rólegum fyrri hálfleik. Víkingar fengu öll bestu marktækifærin en tókst ekki að skora fyrr en eftir leikhléð.

Fram gerði þrefalda skiptingu í hálfleik og byrjaði seinni hálfleikinn betur en fékk mark í bakið á 54. mínútu. Harpa Helgadóttir varð fyrir því óláni að gera sjálfsmark eftir að marktilraun Jasmínar Erlu Ingadóttur breytti um stefnu af henni og endaði í netinu.

Skot Jasmínar virtist vera á leið framhjá áður en boltinn hafði viðkomu í Hörpu og því er markið skráð sem sjálfsmark.

Fram skipti um gír eftir að hafa lent undir og fékk góð marktækifæri en tókst ekki að setja boltann framhjá Elizabeth McClellan.

Heimakonur komust afar nálægt því að skora jöfnunarmark en tókst ekki og svo fékk Jasmín Erla tækifæri til að innsigla sigur Víkings, en skaut í stöngina.

Lokatölur urðu 0-1 eftir fjörugan slag. Víkingur er með 6 stig eftir þennan sigur, alveg eins og Þróttur og Grindavík/Njarðvík, á meðan Fram situr eftir á botninum án stiga.

Fram skoraði þrjú mörk í tapi í fyrstu umferð en hefur ekki skorað síðan.

Fram 0 - 1 Víkingur R.
0-1 Harpa Helgadóttir ('54, sjálfsmark)

Lestu um leikinn: Fram 0 - 1 Víkingur R.
Slapp
banner
banner
banner