Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   mán 11. maí 2026 17:15
Elvar Geir Magnússon
Bosníumenn fyrstir til að tilkynna sinn HM hóp - 40 ára Dzeko
Dzeko á 148 leiki fyrir Bosníu.
Dzeko á 148 leiki fyrir Bosníu.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sóknarmaðurinn Edin Dzeko kemst í sumar á lista þeirra sem hafa spilað á HM eftir að hafa fagnað 40 ára afmæli. Hann er í leikmannahópi Bosníu og Hersegóvínu fyrir mótið.

Kamerúnski framherjinn Roger Milla er eini útileikmaðurinn sem hefur spilað á HM eftir 40 ára aldurinn en hann spilað og skoraði á HM 1994.

Það hafa sex markverðir 40 ára eða eldri spilað á HM; Essam el Hadary fyrir Egyptaland, Faryd Mondragon fyrir Kólumbíu, Pat Jennings fyrir Norður-Írland, Peter Shilton fyrir England, Dino Zoff fyrir Ítalíu og Ali Boumnijel fyrir Túnis.

Þess má geta að Luka Modric (40) og Cristiano Ronaldo (41) munu væntanlega vera með Króatíu og Portúgal á HM í sumar.

Dzeko á 148 leiki fyrir Bosníu sem er fyrsta þjóðin sem opinberar 26 manna hóp sinn fyrir HM í sumar. Bosnía er í áhugaverðum B-riðli ásamt Kanada, Katar og Sviss.

Markverðir: Nikola Vasilj (St Pauli), Martin Zlomislic (Rijeka), Osman Hadzikic (Slaven Belupo)

Varnarmenn: Sead Kolasinac (Atalanta), Amar Dedic (Benfica), Nihad Mujakic (Gaziantep), Nikola Katic (Schalke 04), Tarik Muharemovic (Sassuolo), Stjepan Radeljic (Rijeka), Dennis Hadzikadunic (Sampdoria), Nidal Celik (Lens)

Miðjumenn: Amir Hadziahmetovic (Hull City), Ivan Sunjic (Pafos), Ivan Basic (Astana), Dzenis Burnic (Karlsruher SC), Ermin Mahmic (Slovan Liberec), Benjamin Tahirovic (Brondby), Amar Memic (Viktoria Plzen), Armin Gigovic (Young Boys), Kerim Alajbegovic (RB Salzburg), Esmir Bajraktarevic (PSV Eindhoven)

Sóknarmenn: Ermedin Demirovic (VfB Stuttgart), Jovo Lukic (Universitatea Cluj), Samed Bazdar (Jagiellonia Bialystok), Haris Tabakovic (Borussia Moenchengladbach), Edin Dzeko (Schalke 04)
Slapp
banner