Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 11. júní 2019 12:08
Elvar Geir Magnússon
Heimild: RÚV 
Heimasíða KSÍ varð fyrir tyrkneskri tölvuárás
Icelandair
Frá Laugardalsvelli.
Frá Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Vefsíða KSÍ lá niðri í morgun en er nú komin aftur inn. Síðan varð fyrir netárás, svokallaðri ddos- árás, sem var sprottin undan rifjum tyrknesks hakkarahóps.

Árásin lýsir sér í óeðlilegri umferð um vefinn þar sem þúsundir gervinotenda gera það að verkum að síðan hefur ekki undan og hrynur vegna álags.

RÚV fjallar um málið.

Isavia varð í gær fyrir svipaðri netárás en tyrkneskir fjölmiðlar hafa greint frá því að hakkarahópur beini spjótum sínum að íslenskum vefsíðum til að hefna fyrir móttökur tyrkneska liðsins.

Á Twitter síðu hakkarahópsins má finna nokkrar færslur þar sem fjallað er um árásir á íslenskar síður. Þar var því haldið fram í gær að árásunum yrði haldið áfram.

Mikill hiti hefur verið í aðdraganda leiks Íslands og Tyrklands sem fram fer í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner