Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   þri 11. júní 2024 17:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Slæm veðurspá í Eyjum - ÍBV og Grótta víxla á heimaleikjum
Lengjudeildin
Ekki hægt að spila á Hásteinsvelli vegna veðurs
Ekki hægt að spila á Hásteinsvelli vegna veðurs
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV og Grótta hafa ákveðið að víxla á heimaleikjum en liðin áttu að mætast í Eyjum í 7. umferð Lengjudeildarinnar á fimmtudaginn.


Ákvörðunin hefur verið tekin þar sem spáð er slæmu veðri í Eyjum þennan dag. Leikurinn mun því fara fram á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi. klukkan 17:30 á fimmtudaginn.

Liðin mætast í seinni umferðinni þann 18. ágúst á Hásteinsvelli.

Grótta er í 3. sæti deildarinnar með tíu stig en ÍBV í 6. sæti með sjö stig. Grótta hefur gert fjögur jafntefli og ekki tapað neinum leik og er aðeins eitt af tveimur liðum sem er taplaust í deildinni ásamt toppliði Fjölnis.


Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Fjölnir 14 9 4 1 28 - 14 +14 31
2.    Njarðvík 14 7 4 3 26 - 18 +8 25
3.    ÍBV 13 6 4 3 25 - 15 +10 22
4.    ÍR 14 6 4 4 20 - 18 +2 22
5.    Keflavík 14 5 6 3 20 - 15 +5 21
6.    Þróttur R. 14 5 4 5 22 - 19 +3 19
7.    Þór 13 4 5 4 21 - 19 +2 17
8.    Grindavík 14 4 5 5 22 - 27 -5 17
9.    Afturelding 14 5 2 7 21 - 29 -8 17
10.    Grótta 14 3 4 7 22 - 33 -11 13
11.    Leiknir R. 14 4 0 10 15 - 24 -9 12
12.    Dalvík/Reynir 14 1 6 7 13 - 24 -11 9
Athugasemdir
banner
banner
banner