11.06.25 - 16:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dóri Árna: Hann er stór hluti af sögu Breiðabliks

Damir varð Íslandsmeistari með Breiðabliki í annað sinn í október 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mætir aftur á völlinn eftir rúmlega mánuð.

Endurkoma Damirs Muminovic til Breiðabliks var í dag staðfest en hann hefur skrifað undir samning við félagið sem gildir út tímabilið. Breiðablik endurheimtir Damir frá Asíu þar sem hann spilaði síðustu mánuði eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Blikum síðasta haust.
Fótbolti.net ræddi við Halldór Árnason, þjálfara Breiðabliks, í kjölfar tíðindanna.

TENGT EFNI
Damir semur við Breiðablik út árið (Staðfest)
„Það er frábært að fá Damir aftur, hann er auðvitað stór hluti af sögu Breiðabliks og á stóran þátt í þeim árangri og titlum sem félagið hefur unnið síðustu ár. Það er frábært að fá hann inn aftur, að sama skapi breikkar það líka hópinn hjá okkur," segir Dóri.
„Við leituðum vel og lengi eftir manni í staðin fyrir Damir, en ákváðum svo að treysta á hópinn, það var ekkert sem heillaði okkur nægilega mikið til að stökkva á það. Ásgeir Helgi (Orrason) hefur gripið sénsinn mjög vel og spilað frábærlega. Damir breikkar og stækkar hópinn, það er mjög gott að fá hans reynslu og nærveru inn í klefann."
Damir má ekki spila með Breiðabliki fyrr en eftir miðjan júlí þegar félagaskiptaglugginn opnar. Hann verður ekki búinn að spila í rúmlega einn og hálfan mánuð þegar þar að kemur. Er það eitthvað sem þú spáir í?
„Nei, ég held það sé bara nauðsynlegt fyrir Damir (að fá hvíld). Hann klárar langt tímabil á Íslandi, fer í smá pásu og er svo mættur út að spila í Singapúr. Hann þarf sitt frí eins og aðrir. Hann er núna í fríi á Tenerife og kemur sér hægt og rólega inn í þetta hjá okkur. Hann verður búinn að ná góðri endurheimt og kominn í toppstand þegar hann fær leikheimild. Ég held þetta hitti bara ágætlega á," segir Dóri.
Ásgeir Helgi er sem stendur meiddur, tognaði aftan í læri gegn ÍA fyrir landsleikjahlé og er ekki orðinn klár í slaginn. „Ég held að hann hafi sloppið við alvarlega tognun, hann þarf að jafna sig, en ég held það sé ekki mjög langt í hann."
Breiðablik mætir ÍBV á útivelli á sunnudag en Besta deildin fer aftur af stað um helgina eftir landsleikjahlé.

U21 landsliðsmaðurinn Ásgeir Helgi hefur spilað vel í hjarta varnarinnar hjá Blikum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð