Fotbolti.net
11.06.25 - 13:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Norska undrabarnið allt í einu á leið til Man City

Sverre Nypan.

Sverre Nypan.

Canon

Mynd: Rosenborg

Síðustu mánuði hefur verið talað um að Aston Villa sé að landa norska undrabarninu Sverre Nypan frá Rosenborg, en allt í einu hefur það breyst.

Manchester City kom inn í myndina og núna bendir flest til þess að miðjumaðurinn stórefnilegi verði leikmaður City.
David Ornstein hjá The Athletic segir að City sé nálægt samkomulagi við Rosenborg um Nypan.

City var eitt af þeim félögum sem var að eltast við hann í janúar en svo komu fréttir um að Aston Villa væri líklegasti áfangastaðurinn. Hlutirnir eru hins vegar fljótir að breytast í fótboltanum, en talið er að fjárhagsvandræði hafa haft áhrif á Villa í baráttunni um Nypan.

Nypan, sem var einnig orðaður við Arsenal, kemur til með að vera dýrasti leikmaður sem seldur hefur verið úr norsku úrvalsdeildinni en City stefnir á að lána hann í burtu á næsta tímabili svo hann geti haldið áfram að þróast.

Þessi 18 ára gamli miðjumaður er talinn einn af efnilegustu leikmönnum heims. Nypan spilaði sinn fyrsta leik með Rosenborg árið 2022 og síðan þá verið fastamaður í liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.