24.08.26 - 16:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Láki kynntur í Sádi-Arabíu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Al Ahli

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorlákur Árnason var á föstudag kynntur sem nýr þjálfari kvennaliðs Al Ahli í Sádi-Arabíu og skrifar hann undir eins árs samning.
Fótbolti.net sagði frá því að Láki væri kominn með starf í Sádi fyrr í þessum mánuði.

TENGT EFNI
Láki tekur við starfi í Sádi-Arabíu
Láki var síðast í starfi hjá ÍBV og gerði mjög góða hluti með liðið tímabilið 2025, en hætti óvænt í byrjun desember á síðasta ári.
Al Ahli endaði í 2. sæti deildarinnar í Sádi-Arabíu á síðasta tímabili, tólf stigum frá meisturunum í Al Nassr.
Láki er veraldarvanur 56 ára þjálfari, erlendis hefur hann starfað í Svíþjóð, Hong Kong og Portúgal. Á Íslandi hefur hann starfað fyrir KSÍ sem unglingalandsliðsþjálfari og sinnti einnig öðrum störfum hjá sambandinu. Sem meistaraflokksþjálfari hefur hann verið hjá Þór, Val, Fylki og ÍBV karlamegin og tímabilin 2011 og 2013 stýrði hann kvennaliði Stjörnunnar til Íslandsmeistaratitils og sumarið 2012 vann Stjarnan bikarmeistaratitil undir hans stjórn.