Lið vikunnar í enska - Draumabyrjun hjá nýliðunum

Markvörður: James Trafford (Leeds) - Vildi fá meiri spiltíma og gekk til liðs við Leeds frá Man City í sumar. Hann var einn af fáum markvörðum sem hélt hreinu þegar Leeds lagði Nottingham Forest

Mynd: Leeds

Varnarmaður: Keane Lewis-Potter (Brentford) - Frábær varnarlega og sóknarlega í sigri á Tottenham og skoraði.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Nobel Mendy (Hull City) - Frábær varnarlega og innsiglaði sigur nýliðanna gegn Man Utd

Mynd: Hull

Varnarmaður: Maxence Lacroix (Chelsea) - Kom með reynslu og ró í lið Chelsea og lagði upp í sigri á Fulham

Mynd: EPA

Varnarmaður: Maxim de Cuyper (Brighton) - Skoraði og lagði upp í frábærum sigri Brighton gegn Aston Villa

Mynd: EPA

Miðjumaður: Marc Guehi (Man City) - Er á miðjunni hjá Deeney. Skoraði og hefði átt að skora annað.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Vitaly Janelt (Brentford) - Skoraði í sigri á Tottenham og gerði grunnvallaratriðin mjög vel.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Christos Tzolis (Arsenal) - Frábær frumraun hjá Englandsmeisturunum. Blanda af Gabriel Martinelli og Leandro Trossard að sögn Deeny

Mynd: EPA

Miðjumaður: Anthony Elanga (Newcastle) - Fór illa með Milos Kerkez og skoraði í jafntefli gegn Liverpool

Mynd: EPA

Miðjumaður: Cole Palmer (Chelsea) - Átti erfitt uppdráttar vegna meiðsla í fyrra og var ekki valinn í landsliðshópinn á HM. Kom ákveðinn til leiks og lagði upp og skoraði gegn Fulham

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Joao Pedro (Chelsea) - Hann skoraði einnig og lagði upp. Verður hans ár að mati Deeney

Mynd: EPA

Þjálfari: Sergej Jakirovic (Hull City) - Stórkostleg byrjun hjá nýliðunum með sigri á Man Utd.

Mynd: EPA
