11.06.26 - 11:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrirliði Aftureldingar í banni í undanúrslitum - Garpur fékk rautt eftir leik

Aron Elí verður í banni í undanúrslitunum.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Garpur fékk rautt eftir leikinn í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding komst í gær í fyrsta sinn í sögunni í undanúrslit Mjólkurbikarsins þegar liðið sló út Stjörnuna í Mosfellsbæ. Lokatölur urðu 3-1 fyrir heimamönnum á Malbikstöðinni að Varmá.
Afturelding kemst að því á næstu dögum hver andstæðingurinn í undanúrslitum verður.
Aron Elí Sævarsson, fyrirliði Aftureldingar, verður í banni í undanúrslitunum eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald í keppninni í gær.

TENGT EFNI
Mjólkurbikarinn: Birkir Már með tvennu í sögulegum endurkomusigri Aftureldingar
Rautt eftir leik
Stjarnan fékk að líta sjö gul spjöld í leiknum í gær og tvö rauð spjöld. Heimamenn í Aftureldingu fengu þrjú gul spjöld.
Eftir leikinn fékk liðsstjóri liðsins, Garpur Elísabetarson, bróðir þjálfarans Jökuls, að líta rauða spjaldið fyrir munnsöfnuð.
Jökull hafði fengið að líta gula spjaldið eftir að Örvar Eggertsson fékk sitt annað gula spjald, á sama tímapunkti fékk Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði liðsins, líka gult spjald.
Leikirnir þrír sem eftir eru í 8-liða úrslitum
föstudagur 12. júní
17:30 Ægir-Breiðablik (GeoSalmo völlurinn)
20:15 ÍA-Víkingur R. (ELKEM völlurinn)
laugardagur 13. júní
14:00 Fylkir-Grótta (tekk VÖLLURINN)