Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fim 11. júní 2026 12:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
U19: Þær fara á EM fyrir Íslands hönd
Kvenaboltinn
Ingibjörg hefur spilað frábærlega í Bestu deildinni og kemur inn í hópinn.
Ingibjörg hefur spilað frábærlega í Bestu deildinni og kemur inn í hópinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóley Edda er ein af fimm leikmönnum Vals í hópnum.
Sóley Edda er ein af fimm leikmönnum Vals í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Jón Sigurðsson, landsliðsþjáfari U19 kvenna, hefur valið hóp sem tekur þátt í lokakeppni EM 2026.

Mótið fer fram í Bosníu og Hersegóvínu dagana 25. júní - 10. júlí og er Ísland þar í riðli með Austurríki, Spáni og Sviss.

Ísland hefur leik gegn Austurríki 28. júní, mætir svo Spáni 1. júlí og endar á leik gegn Sviss 4. júlí.

21 leikmaður er í hópnum og koma flestar í hópnum úr Val. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir er skráð í hollenska félagið PEC Zwolle en hún er þar á láni frá Val. Breiðablik og FH eru þá með fjóra fulltrúa hvort í hópnum.

Anna Arnarsdóttir (Keflavík), Anna Heiða Óskarsdóttir (FH), Ingibjörg Magnúsdóttir (FH), Fanney Lísa Jóhannesdóttir (Stjarnan) og Anika Jóna Jónsdóttir (Víkingur) koma inn í hópinn frá apríl-verkefninu í undankeppninni. A-landsliðskonan Thelma Karen Pálmadóttir, leikmaður Häcken í Svíþjóð, er ekki í hópnum.

Hópurinn
Anna Arnarsdóttir - Keflavík
Jónína Linnet - FH
Anna Heiða Óskarsdóttir - FH
Berglind Freyja Hlynsdóttir - FH
Ingibjörg Magnúsdóttir - FH
Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir - Haukar
Edith Kristín Kristjánsdóttir - Breiðablik
Líf Joostdóttir van Bemmel - Breiðablik
Sunna Rún Sigurðardóttir - Breiðablik
Herdís Halla Guðbjartsdóttir - Breiðablik
Védís Ösp Einarsdóttir - Selfoss
Elísa Bríet Björnsdóttir - Þór/KA
Fanney Lísa Jóhannesdóttir - Stjarnan
Anika Jóna Jónsdóttir - Víkingur R.
Freyja Stefánsdóttir - Víkingur R.
Rebekka Sif Brynjarsdóttir - FC Nordsjælland
Sóley Edda Ingadóttir - Valur
Helga Rut Einarsdóttir - Valur
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir - Valur
Arnfríður Auður Arnarsdóttir - Valur
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir - PEC Zwolle
Slapp
banner
banner