Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 11. júlí 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
14 ára og 15 ára léku sinn fyrsta leik hjá Þór/KA
Úr leiknum í gærkvöldi.
Úr leiknum í gærkvöldi.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Anna Brynja Agnarsdóttir og Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, léku í gær sinn fyrsta leik með Þór/KA í Pepsi Max-deild kvenna en þær eru báðar ungar að aldri.

Báðar komu þær inn á í 6-0 sigi á HK/Víkingi á Þórsvelli.

Anna Brynja Agnarsdóttir (sem er 14 ára, verður ekki 15 fyrr en eftir viku) kom inn á fyrir Karen Maríu Sigurgeirsdóttur á 76. mínútu og Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (sem varð 15 ára í apríl) kom inn á í stað Þórdísar Hrannar Sigfúsdóttur á 80. mínútu.

Anna Brynja leikur með 3. flokki Þórs en Ísfold Marý með 3. flokki KA segir á heimasíðu Þórs.

Hér að neðan má sjá viðtal sem ÞórTV tók við stelpurnar eftir leik.


Athugasemdir
banner
banner