fim 11. júlí 2019 15:42
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið KR gegn Molde: Skúli Jón kemur inn
Skúli Jón Friðgeirsson.
Skúli Jón Friðgeirsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR mætir norsku meisturunum í Molde í Evrópudeildinni klukkan 17:00 en fyrri leikur liðanna fer fram ytra.

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, gerir eina breytingu á liðinu síðan gegn ÍBV á laugardaginn en Skúli Jón Friðgeirsson kemur inn á miðjuna fyrir Atla Sigurjónsson.

Skúli Jón hefur verið að koma inn í lið KR að undanförnu eftir að hafa misst af fyrstu vikum tímabilsins vegna höfuðmeiðsla.

Björgvin Stefánsson er í leikmannahópi KR í fyrsta sinn í langan tíma en hann hefur verið í banni eins og frægt er.

Smelltu hér til að sjá beina textalýsingu frá leiknum

Byrjunarlið KR
1. Beitir Ólafsson (m)
4. Arnþór Ingi Kristinsson
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
7. Skúli Jón Friðgeirsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
16. Pablo Punyed
19. Kristinn Jónsson
20. Tobias Thomsen
22. Óskar Örn Hauksson (f)
25. Finnur Tómas Pálmason
Athugasemdir
banner
banner