Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. júlí 2020 18:05
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikar kvenna: Þór/KA og ÍA í 8-liða úrslit
Þór/KA spilar í 8-liða úrslitum bikarsins
Þór/KA spilar í 8-liða úrslitum bikarsins
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
ÍA og Þór/KA eru komin í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna en Þór/KA vann Keflavík 1-0 á meðan ÍA vann dramatískan sigur er liðið vann Augnablik 2-1.

Þór/KA er búið að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins eftir að hafa lagt Keflavík að velli, 1-0, á Þórsvellinum í dag.

Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir gerði eina mark leiksins á 13. mínútu leiksins. Fyrsta mark hennar fyrir félagið og reyndist það eina mark leiksins. Lokatölur 1-0 fyrir Þór/KA og liðið komið í 8-liða úrslit.

ÍA vann svo Augnablik 2-1. SIgurmarkið kom í uppbótartíma síðari hálfleiks.

Dregið verður í 8-liða úrslit innan skamms en Breiðablik, FH, Haukar, KR, Selfoss og Valur eru öll í pottinum.

Úrslit og markaskorarar:

Þór/KA 1 - 0 Keflavík
1-0 Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir ('13 )

ÍA 2 - 1 Augnablik
Athugasemdir
banner
banner
banner