Óli Stefán: Þetta er bara fótboltinn, hann er stór furðulegt fyrirbæri

Óli Stefán Flóventsson þjálfari Selfoss

Mynd: Selfoss

Óli Stefán Flóventsson þjálfari Selfoss

Mynd: Selfoss
Í dag fór fram svokallaður Kótelettuleikurinn á Selfossi. Þar tóku heimamenn á móti Hvíta Riddaranum. Leikurinn var sá fyrsti í 12.umferð 2.deildar karla.
Niðurstaðan var 2-2 jafntefli á JÁVERK-vellinum en bæði lið leiddu á einhverjum tímapunkti leiks. Óli Stefán Flóventsson var til taks eftir leik í viðtal.
„Ég er ógeðslega svekktur, ég verð bara að segja það. Fannst við gera meira en nóg til að verðskulda meira en eitt stig."
„Soldið sagan okkar, erum klaufar í þessum mörkum sem við fáum á okkur, svo erum við ekki að ná að nýta þá yfirburði sem komum okkur í. Ógeðslega fúlt en við verðum að læra hratt."
Hvíti Riddarinn leiddi 1-0 þegar flautað var til hálfleiks og Selfoss liðið átti vægast sagt slakan fyrri hálfleik.
„Vorum flatir, vorum að stýra en kannski stuttar sendingar í stað fyrir að hreyfa hraðar á milli. Það var allt annað lið sem mætti eftir hálfleik og tekur yfir leikinn."
„Orkan og viljinn til að sækja þetta og koma tilbaka var alveg til fyrirmyndar. Þetta er bara fótboltinn, hann er stór furðulegt fyrirbæri stundum, að miklu leiti mjög ungir leikmenn sem eru í stóru hlutverki í fyrsta sinn og það fylgir því óstöðugleiki."
„Við erum ánægðir með mjög margt en auðvitað þurfum við að læra hratt, aðalega varnarleikurinn, á ótrúlega erfitt með að fá á okkur 2 mörk að meðaltali í leik, en við vinnum hörðum höndum að því."
Selfoss er ofarlega í töflunni en sigur hefði getað verið sætur fyrir þá í leik dagsins, framundan er ferðalag og leikur við KFA eftir viku.
„Ég spái rosa lítið út hvernig þessi deild lítur út í dag. Miklu meiri áhuga á að horfa í frammistöður okkar og þær eru allskonar.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.





