11.08.15 - 16:01
Elvar Geir Magnússon
Xherdan Shaqiri til Stoke (Staðfest)

Xherdan Shaqiri í búningi Stoke.

Mynd: Stoke City

Xherdan Shaqiri í búningi Stoke.

Mynd: Stoke City
Svisslendingurinn Xherdan Shaqiri er formlega orðinn leikmaður Stoke City en hann var keyptur á 12 milljónir punda og er þar með dýrasti leikmaður í sögu Stoke.
Shaqiri kemur frá Inter á Ítalíu og hefur skrifað undir fimm ára samning við Stoke.
Shaqiri er 23 ára vængmaður og var á sínum tíma talinn einn efnilegasti leikmaður heims. Hann á 46 landsleiki og 17 mörk fyrir A-landslið Sviss.
Hann er uppalinn hjá Basel en fór til Bayern München árið 2012. Hann náði ekki að festa sig í sessi með aðalliði þýska stórliðsins og skoraði 11 mörk í 52 leikjum.
Í janúar á þessu ári gekk Shaqiri í raðir Inter en dvöl hans reyndist styttri en áætlað var.