
HK 4 - 1 Haukar
1-0 Gabriella Lindsay Coleman ('36)
2-0 Emma Sól Aradóttir ('52)
2-1 Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir ('64)
3-1 Isabella Eva Aradóttir ('73)
4-1 Gabriella Lindsay Coleman ('79)
Lestu um leikinn: HK 4 - 1 Haukar
HK og Haukar mættust í seinni leik kvöldsins í Lengjudeild kvenna og voru Kópavogskonur með góða stjórn á fyrri hálfleiknum.
HK leiddi aðeins með einu marki í hálfleik þrátt fyrir yfirburðina og var það Gabriella Lindsay Coleman sem skoraði. Gabriella fylgdi stangarskoti Örnu Sólar Sævarsdóttur eftir með marki.
Emma Sól Aradóttir tvöfaldaði forystu HK í upphafi síðari hálfleiks en Haukar náðu svo að minnka muninn. Hin 15 ára gamla Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir kom boltanum í netið og komst hársbreidd frá því að jafna leikinn tveimur mínútum síðar en Audrey Rose Baldwin gerði vel að verja í horn.
Það lifnaði við Haukum eftir markið hennar Ragnheiðar en HK-ingar voru ekki lengi að slökkva í vonarneistum Hafnfirðinga. Ísabella Eva Aradóttir skoraði á 73. mínútu áður en Gabriella gerði út um viðureignina með sínu öðru marki og urðu lokatölur 4-1 fyrir HK.
Stigin þrjú eru dýrmæt fyrir HK sem er í harðri toppbaráttu. Liðið er í öðru sæti með 32 stig eftir 14 umferðir.
Haukakonur virðast vera á leið niður um deild þar sem þeim hefur aðeins tekist að safna fjórum stigum í sumar. Þær eru átta stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir.