Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 11. ágúst 2022 19:57
Ívan Guðjón Baldursson
Mjólkurbikarinn: Lennon með þrennu í fyrri hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kórdrengir 2 - 4 FH
1-0 Gunnlaugur Fannar Guðmundsson ('7)
1-1 Steven Lennon ('26)
2-1 Sverrir Páll Hjaltested ('29)
2-2 Steven Lennon ('33, víti)
2-3 Steven Lennon ('42)
2-4 Kristinn Freyr Sigurðsson ('54)


Lestu um leikinn: Kórdrengir 2 -  4 FH

Kórdrengir tóku á móti FH í hörkuslag í Mjólkurbikarnum og náðu forystunni snemma leiks þegar boltinn datt fyrir Gunnlaug Fannar Guðmundsson í kjölfar aukaspyrnu. 

FH tók algjöra stjórn á leiknum eftir markið og sótti stíft. Steven Lennon jafnaði leikinn eftir mistök í vörn Kórdrengja sem var ekki tilbúin í slagin eftir snöggt innkast FH-inga. Oliver Heiðarsson gaf fastan bolta fyrir markið og mistókst Óskari Sigþórssyni að handsama boltann. Þess í stað missti hann boltann úr greipum sér og skoraði Lennon í autt markið.

Það tók Kórdrengi aðeins þrjár mínútur að endurheimta forystuna. Ólafur Guðmundsson missti boltann klaufalega í vörn og gerði Sverrir Páll Hjaltested vel að spretta upp og klára einn gegn markmanni.

Það var gífurlegur hasar á Framvelli og voru Hafnfirðingar búnir að jafna leikinn á ný skömmu síðar. Gunnlaugur Fannar braut þá á Birni Daníeli Sverrissyni innan vítateigs og skoraði Lennon af vítapunktinum. Staðan orðin 2-2 eftir rétt rúmlega hálftímaleik og átti Steven Lennon eftir að fullkomna þrennuna fyrir leikhlé.

Lennon fékk þá boltann frá Kristni Frey Sigurðssyni sem missteig sig og gaf óvart stoðsendingu. Staðan 2-3 eftir afar fjörugan fyrri hálfleik.

Kristinn Freyr skoraði fjórða mark FH í upphafi síðari hálfleiks og róaðist leikurinn aðeins niður í kjölfarið. Kórdrengir komust þó nálægt því að minnka muninn og var Lennon næstum búinn að skora sitt fjórða mark.

Undir lokin komu Kórdrengir boltanum í netið en ekki dæmt gilt vegna brots á markverði FH í aðdragandanum. Það voru Kórdrengir ósáttir með en lokatölur urðu 2-4 og er FH komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins ásamt KA.


Athugasemdir
banner