11.08.26 - 19:07
Brynjar Ingi Erluson
Inter og Tottenham hefja viðræður um Spence

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalíumeistarar Inter eru komnir í formlegar viðræður við Tottenham um enska bakvörðinn Djed Spence. Sky Sports greinir frá þessu í dag.
Inter er tilbúið að bjóða 30 milljónir punda í Spence og telur þá upphæð nægja til að sannfæra Tottenham um að selja.
Tottenham er opið fyrir brottför leikmannsins en aðeins ef sanngjarnt tilboð berst.
Spence er 26 ára gamall og átti góðu gengi að fagna með enska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í sumar. Hann gæti þó átt erfitt með að fá margar mínútur hjá Tottenham á komandi tímabili.
Destiny Udogie og Andy Robertson eru á undan honum í goggunarröðinni vinstra megin og Pedro Porro er aðalvalkosturinn í hægri bakvarðarstöðunni.
Inter hefur lengi haft Spence á óskalistanum og vill fá fjölhæfan bakvörð sem getur leikið báðum megin og einnig sem vængbakvörður.