Fotbolti.net
10.08.26 - 22:30
Helgi Inguson

Óskar Hrafn: Hann hefði klárlega getað farið erlendis

Auglýsing
„Það sem réði úrslitum í dag var hversu vel við sóttum hratt eftir að hafa unnið boltann.“

„Það sem réði úrslitum í dag var hversu vel við sóttum hratt eftir að hafa unnið boltann.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR heimsótti Fram í kvöld í stórleik 18. umferðar. Gestirnir komust þremur mörkum yfir áður en Fram náði að minnka muninn í 2-3. KR-ingar bættu þá tveimur mörkum við og lokatölur 2-5 í Úlfársdal. Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, eftir þennan fjöruga leik.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 5 KR
„Þetta var ágætis leikur. Við höfum spilað betur, við höfum yfirleitt haft meiri stjórn á leikjunum í sumar. Við fórum aðeins of oft í löngu boltanna en heilt yfir get ég ekki kvartað yfir 5-2 sigri á móti jafn öflugu lið og Fram er," sagði Óskar Hrafn um leikinn.

„Það er áhyggjuefni að við skulum hleypa Frömurum aftur í leikinn. Staðan er 3-0 og það er ekkert í gangi. Svo komast þeir á bragðið og á tímabili eru þeir líklegri til að jafna leikinn í 3-3 heldur en við að skora fjórða markið."

Eiður Gauti skoraði eitt mark og lagði upp annað í dag. Hann hefur þá skorað fjögur mörk í síðustu fjórum leikjum.

„Hann er bara öflugur, búinn að vera öflugur fyrir okkur. Hann líkt og flestir aðrir í dag geta spilað töluvert betur."

Eiður lék um tíma með Ými, venslaliði HK, og þrátt fyrir að honum hafi boðist tækifæri að spila í efri deildum kaus hann að spila með Ými . Hversu langt hefði Eiður getað náð ef hann hefði tekið fótboltanum alvarlega allan tímann?

„Hann hefði getað náð mjög langt. Hversu langt er erfitt að segja en hann hefði klárlega getað tekið skrefið erlendis," sagði Óskar.

Með sigrinum munar nú sex stigum á KR og Víkingi. Ættu Víkingar að óttast KR eftir þessa frammistöðu?

„Við erum einhverjum sex stigum á eftir Víkingi og í augnablikinu eru þeir þægilegir, að búa sig undir Evrópuleik. Við þurfum bara að bíða og sjá. Ég held að það muni koma í ljós á næstu vikum hvernig þetta þróast," sagði Óskar að lokum
„Við bara réðum ekki við Kennie í dag.“

„Við bara réðum ekki við Kennie í dag.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta eru langbestu stuðningsmennirnir á Íslandi, heiður að spila fyrir þetta fólk.“

„Þetta eru langbestu stuðningsmennirnir á Íslandi, heiður að spila fyrir þetta fólk.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.