Fotbolti.net
11.08.26 - 17:30
Innkastið

Komið ótrúlega sterkur inn síðan hann kom frá Póllandi

Oliver og Ísak hafa myndað frábært miðvarðapar hjá FH

Oliver Stefánsson hefur komið gríðarlega öflugur inn í lið FH.

Oliver Stefánsson hefur komið gríðarlega öflugur inn í lið FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH er á góðu skriði í Bestu deildinni, liðið er taplaust í níu leikjum í deildinni og komst upp úr fallsæti með því að sigra KA í síðustu umferð. Í Innkastinu var rætt um bætt gengi FH og vel heppnaðar styrkingar.
„Þeir hafa haldið hreinu í fjórum leikjum af síðustu fimm og langt síðan þeir hafa tapað. Mikið af þessu eru jafntefli vissulega en það verður að gefa þeim kredit. Jökull (Andrésson, markvörður) er búinn að vera einn besti leikmaður deildarinnar að undanförnu," segir Gunnar Jarl Jónsson.

„Jóhannes Kristinn (Bjarnason, sem kom á láni frá Víkingi) hefur komið sterkur inn, fær að spila sína stöðu á miðjunni, og það er búið að styrkja liðið. Það virðist vera meiri stemning og meiri eining í liðinu. Ef ég væri FH-ingur væri ég nokkuð bjartsýnn á næstu leiki. Þeir eru þéttir og geta verið helvíti sáttir með þessa útkomu á Akureyri."

„Það má ekki gleyma að minnast á þátt Olivers Stefánssonar. Eftir að hann kom inn hefur liðið fengið á sig eitt mark. Hann og Ísak Óli (Ólafsson) hafa myndað frábært miðvarðapar. Oliver hefur komið ótrúlega sterkur inn síðan hann kom frá Póllandi," segir Gunnar.

Oliver, sem er 24 ára miðvörður, gekk í raðir FH í lok júní eftir að hafa rift samningi sínum við pólska félagið GKS Tychy.

Innkastið - KR getur orðið Íslandsmeistari

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.