11.08.26 - 14:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Keflvíkingar vonast til að fá inn tvo fyrir gluggalok

Eru í 7. sæti deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónas Guðni er fyrrum leikmaður Keflavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eru í 7. sæti deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík ætlar sér að styrkja leikmannahópinn fyrir gluggalok annað kvöld. Keflvíkingar hafa misst út leikmenn úr varnarlínunni í sumar og ætla sér að þétta raðirnar fyrir lokasprettinn.
Bakvörðurinn Anton Kralj meiddist í sumar og þurfti að gangast undir aðgerð sem batt enda á hans tímabil. Þá fékk miðvörðurinn Davíð Helgi Aronsson ekki að klára tímabilið þar sem Víkingur kallaði hann til baka úr láni og lánaði hann svo strax í dönsku úrvalsdeildina.

TENGT EFNI
Svona var glugginn í Bestu deildinni
„Við erum að vinna í að ná inn tveimur leikmönnum," segir Jónas Guðni Sævarsson sem er yfirmaður fótboltamála í Keflavík.
Leikmennirnir sem Keflvíkingar eru að reyna fá eru báðir erlendir og eru ekki sóknarþenkjandi.
„Þetta eru leikmenn sem eru fjölhæfir og geta leyst varnar- og miðjustöðurnar," segir Jónas.
Keflavík er í 7. sæti með 22 stig eftir 18 umferðir. Næsti leikur er gegn Þór á útivelli á laugardag.