Fotbolti.net
11.08.26 - 15:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Erlend félög horfa til Markúsar

Átt gott tímabil með ÍA.

Átt gott tímabil með ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa erlend félög áhuga á því að fá Markús Pál Ellertsson í sínar raðir.

Danska úrvalsdeildarfélagið Silkeborg og svissnesku meistararnir í Thun vilja Markús og þá er Västerås í Svíþjóð með augastað á honum.
Thun, sem er í miðju einvígi gegn Víkingi í forkeppni Evrópudeildinni, hefur verið með augastað á nokkrum leikmönnum í Bestu deildinni. Félagið reyndi að kaupa Amin Cosic frá KR og hefur fylgst með Ágústi Orra Þorsteinssyni hjá Breiðabliki.

Það er tenging milli Silkeborg og Skagans þar sem Stefán Teitur Þórðarson fór til danska félagsins frá ÍA haustið 2020. Silkeborg endaði í 9. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í fyrra.

Västerås er um miðja deild í sænsku úrvalsdeildinni og síðustu daga hefur framherjinn Mikkel Ladefoged verið sterklega orðaður við Lincoln City í ensku Championship deildinni.

Markús Páll er sóknarmaður sem fæddur er 2006. Hann hefur komið á óvart í sumar, kom frá Triestina á Ítalíu í vetur og hefur skorað níu mörk í Bestu deildinni. Samkvæmt Fotmob er hann m.a. ofarlega í deildinni yfir sköpuð færi, tæklingar og unna bolta. Markús er uppalinn hjá Fram og á að baki fjóra leiki með U19 landsliðinu.
Erlend félög horfa til Markúsar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.